Jæja á sunnudaginn kom ég í bæinn. Gisti fyrstu nóttina heima hjá
Gumma bróðir, hitti Írisi og litlu dúlluna mína hana Töru Sól

Hún er orðin svo stór, alveg 9 mánaða gömul, og alltaf brosandi

Á því samt miður enga nýlega mynd af henni
Kom svo til Sigrúnar á mánudaginn, og verð þar í allt sumar

Við
fórum og fengum okkur subway og ég sótti svo um vinnu bæði í
Hagkaup og veröldinni okkar. Konan í hagkaup tók svo rosalega vel í
þetta, að ég ákvað að sækja um fleiri störf seinna, átti nefnilega
að mæta í viðtal í Hakaup kl 11 á þriðjudeginum.
Á þriðjudaginn fór ég svo í viðtalið, tja ef það má kalla þetta
viðtal, meira svona skrifa undir starfssamning eða hvað sem þetta
heitir, ég er semsagt komin með vinnu á kassa í Hagkaup, Smáralind.
Ekki beint drauma vinnan, en þetta sleppur

svo mikið að gera að
maður hefur bara ekki tíma til að leiðast

Sé svo til hvernig
vaktir ég fæ þarna, ef þær eru ekki nægar þá bara að sækja um á
öðrum stað líka. En allavega er sumrinu mínu reddað
Ég er svo búin að hitta hana Kristínu mína 2 kvöld í röð. Fórum
saman í bíó á Prime, alveg ágæt mynd, með gaurnum sem leikur Jake í
One tree hill, bara flottur sko. Hitti Kristínu svo aftur í gær og
við leigðum okkur mynd, the sisterhood of the travelling pants
minnir mig að hún hét. Lentum í einhverjum svaka clueless
afgreiðslumanni þegar við vorum að taka dvd myndina og kaupa okkur
nammi

Hann vissi ekki upp né niður, vissi ekki hvar nammið var
og var hræðilegur að reikna saman verð.. meira að segja ég veit að
90 plús 90 er 180! hahah.
En í dag var svo bara vinna aftur, jibbí kóla

Sigrún var líka að
vinna, í Dýrabæ sem er þarna inni í Hagkaup. Svo í hádeginu þá
keyptum við okkur subway, og ég kíkti svo aftur á hana í kaffinu
mínu, enda dauðleiddist henni, voða fáir að versla þar.. meðan
maður hefur ekki við inni í Hagkaup. Þekki samt engann þarna enn,
mest samt gaurinn sem kenndi mér á kassann.. Hann er tja, spes..
Planið var að hitta Kollu frænku samt í kvöld held ég, en símanum
hennar var rænt svo hún verður að hafa samband við mig, ég hef
ekkert númer til að hringja í, svo Kolla ef þú lest þetta, hringdu
í mig þegar þú getur hitt mig, ég gæti verið að vinna svo það er
best að hringja eftir 8
Í næstu viku verð ég svo hjá henni Aldísi minni þar sem Sigrún er
að skreppa til parísar með frönskuáfanganum sínum.. Hlakka til þess